Yfirlæknir Blóðbankans
Starf yfirlæknis blóðbankaþjónustu á Landspítala er laust til umsóknar. Landspítali auglýsir eftir metnaðarfullum og framfarasinnuðum sérfræðilækni sem er reiðubúinn að leiða og efla starfsemi Blóðbankans ásamt því að tryggja árangursríkt mennta- og vísindastarf. Starfið er unnið í nánu samstarfi við deildarstjóra, forstöðumann kjarna, framkvæmdastjóra og annað starfsfólk. Auk þess er vaxandi samvinna við ónæmisfræðideild og er því um verulegt samstarf milli eininganna að ræða. Viðkomandi þarf því að búa yfir afburða samskiptahæfni og hafa hæfni til að takast á við breytingar.
Starfshlutfall er 100% og er starfið laust frá 1. mars 2025 eða eftir nánara samkomulagi. Innan Blóðbankans starfar öflugur hópur samhents teymis reyndra starfsmanna sem vinna í nánu samstarfi við aðrar deildir spítalans. Næsti yfirmaður er forstöðumaður klínískrar rannsókna- og blóðbankaþjónustu.
Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt sérfræðileyfi í klínískri ónæmisfræði og blóðgjafafræði eða skyldum greinum
Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar
Færni í stjórnunarhlutverki, þ.e. fagleg ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagsleg ábyrgð
Reynsla af kennslu, vísinda- og nýsköpunarstörfum er kostur
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Jákvætt lífsviðhorf, lausnarmiðuð nálgun og framúrskarandi samskiptahæfni
Frumkvæði, drifkraftur og stefnumarkandi hugsun
Góð íslensku- og enskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Ber faglega, fjárhagslega og starfsmannaábyrgð innan Blóðbankans í samráði við deildarstjóra
Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt
Tryggir árangursríkt mennta- og vísindastarf innan starfseiningar
Þróar þjónustu innan ábyrgðarsviðs með áherslu á samhæfingu við aðra starfsemi kjarnans
Ber læknisfræðilega ábyrgð á starfsemi einingar í samræmi við stefnu Landspítala
Ber ábyrgð á stefnumótun og áætlanagerð sérgreinar með það að markmiði að hún sé hagkvæm og innan rekstrarviðmiða hvers árs
Ábyrgðaraðili blóðbankaþjónustu skv. 9.gr. reglugerðar 441/2006 um söfnun, meðferð, varðveislu og dreifingu blóðs
Framfylgir stefnumótun og áherslum framkvæmdastjórnar