Hjúkrunarfræðingar á bráðamóttöku
Við leitum eftir hjúkrunarfræðingum sem hafa áhuga á bráðahjúkrun. Í boði eru áhugaverð og fjölbreytt störf með góðu samstarfsfólki. Á bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi býðst gott tækifæri fyrir hjúkrunarfræðinga til að þróa með sér faglega þekkingu í meðferð og mati á veikum og slösuðum sjúklingum. Deildin er opin allan sólarhringinn, alla daga ársins. Þangað koma allir sjúklingahópar Landspítala og er því starfið fjölbreytt og engir dagar eins. Starfið felur í sér mikla teymisvinnu þar sem unnið er náið með öllum starfsstéttum. Á deildinni ríkir sérstaklega góður starfsandi.
Boðið verður upp á einstaklingshæfða aðlögun, undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga.
Á deildinni er einnig öflugt fræðslustarf og starfsþróun samkvæmt hæfniviðmiðum bráðahjúkrunar og halda bráðahjúkrunarfræðingar og sérfræðingar í bráðahjúkrun utan um skipulag, leiðsögn og fræðslu.
Við leitum eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingum sem eru sjálfstæðir í starfi, með ríka þjónustulund og með góða samskiptahæfni. Starfshlutfall er 80-100% eða eftir samkomulagi. Unnið er á þrískiptum vöktum. Starfið er laust og upphafsdagur eftir samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.