Sérnámsstöður í háls-, nef- og eyrnalækningum
Lausar eru til umsóknar sérnámsstöður í háls-, nef- og eyrnalækningum. Ráðið er til 2 ára í fyrstu en gert er ráð fyrir 5 ára sérnámi skv. marklýsingu. Gert er ráð fyrir 6 mánuðum á öðrum skilgreindum deildum (t.d. lýta, heila- og tauga), 3 mánuðum á HTÍ og síðan 4 árum og 3 mánuðum á HNE deild. Framgangsmat unnið í samræmi við reglugerð 856/2023. Marklýsingin er vottuð og viðurkennd af mats- og hæfisnefnd Heilbrigðisráðuneytisins. Námið er byggt á marklýsingu evrópsku HNE samtakanna. Skilyrði fyrir veitingu sérfræðiréttinda er fullnægjandi framgangur og að standast evrópusamtaka HNE. Sérnám fer fram á Landspítala og Heyrnar- og talmeinastöð Íslands.
Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Upphafsdagur ráðningar er á bilinu júní til ágúst 2025 en fimmtudaginn 18. september er móttökudagur sérnáms, annars getur upphaf starfs verið samkvæmt samkomulagi við kennslustjóra sérgreinarinnar.
Sjá .
Sjá almennt um sérnám í læknisfræði, og .
Menntunar- og hæfniskröfur
Hafa lokið sérnámsgrunni eða sambærilegu starfsnámi, sem samþykkt hefur verið af kennsluráði sérnámsgrunns, við upphaf starfs
Íslenskt lækningaleyfi
Áhugi á að starfa við viðkomandi sérgrein
Að lágmarki B2 tungumálafærni í íslensku, nema um annað hafi verið samið sérstaklega
Fyrri starfsreynsla, reynsla af vísinda-, umbóta- og gæðastörfum æskileg
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna og nám á háls-, nef- og eyrnaskurðdeild, dag- og göngudeildum, skurðstofum og legudeildum ásamt vaktþjónustu undir handleiðslu sérfræðilækna
Þátttaka í ráðgjafaþjónustu undir handleiðslu sérfræðilækna
Kennsla lækna í sérnámsgrunni, læknanema og annarra fagstétta heilbrigðisstarfsfólks
Þátttaka í gæða- og vísindavinnu
Sérnámslæknir ber sjálfur ábyrgð á fullri þátttöku í öllum þáttum sérnáms og skrásetningu þess í samræmi við marklýsingu og skráningarkerfi
Framgangur milli námsára er ákvarðaður með árlegu framvindumati
Þátttaka í fræðslu og hermikennslu