Sérnámsstaða í innkirtlalækningum
Laus er til umsóknar sérnámsstaða í innkirtlalækningum. Um er að ræða undirsérgrein lyflækninga og er það forkrafa að vera með sérfræðileyfi í þeirri sérgrein.
Sérnámið er byggt á marklýsingu Royal Colleges of Physicians Training Board í Bretlandi og vottað af mats- og hæfisnefnd Heilbrigðisráðuneytisins í samræmi við reglugerð 856/2023. Sérnámið er í heild þrjú ár, það fer fram á Landspítala fyrstu tvö árin en síðan er gert ráð fyrir að viðkomandi læknir fari erlendis á eigin vegum og ljúki tólf mánaða þjálfun, að því loknu telst námið fullgilt.
Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Upphafsdagur ráðningar er á bilinu júní ¿ ágúst 2025 en fimmtudaginn 18. september er móttökudagur sérnáms, annars getur upphaf starfs verið samkvæmt samkomulagi við kennslustjóra sérgreinarinnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt sérfræðilækningaleyfi í lyflækningum
Áhugi á að starfa við viðkomandi sérgrein
Lágmarkskunnátta í íslensku, nema samkomulag sé um annað
Fyrri starfsreynsla, reynsla af vísinda-, umbóta- og gæðastörfum æskileg
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
Áreiðanleiki, stundvísi og árangursmiðað viðhorf
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna og nám á legudeildum og göngudeildum ásamt vaktþjónustu almennra lyflækninga og undirsérgreinar skv. marklýsingu
Þátttaka í ráðgjafaþjónustu undir handleiðslu sérfræðilækna
Kennsla lækna í sérnámi, sérnámsgrunni, læknanema og annarra fagstétta heilbrigðisstarfsfólks
Þátttaka í gæða- og vísindavinnu
Sérnámslæknir ber sjálfur ábyrgð á fullri þátttöku í öllum þáttum sérnáms og skrásetningu þess í samræmi við marklýsingu og skráningarkerfi
Framgangur milli námsára er ákvarðaður með árlegu framvindumati