Sérnámsstaða í ofnæmis- og ónæmislækningum
Lausar eru til umsóknar sérnámsstaða í ofnæmis-og ónæmislækningum. Um er að ræða fullt sérnám að lokinni MRCP gráðu í lyflækningum eða sem undirsérgrein lyflækninga eftir full sérfræðiréttindi í lyflækningum.
Sérnámið er byggt á nýsamþykktri íslenskri marklýsingu sem er byggð upp á grunni marklýsingar UEMS og vottað af mats- og hæfisnefnd Heilbrigðisráðuneytisins í samræmi við reglugerð 856/2023. Sérnámið er í heild þrjú ár, það fer fram á Landspítala fyrstu tvö árin en síðan er gert ráð fyrir að viðkomandi læknir fari erlendis og ljúki tólf mánaða þjálfun. Sérnám fer fram á Landspítala og auk þess þarf erlenda námsvist til að ljúka fullgildu námi.
Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Upphafsdagur ráðningar er á bilinu júní - ágúst 2025 en fimmtudaginn 18. september er móttökudagur sérnáms, annars getur upphaf starfs verið samkvæmt samkomulagi við kennslustjóra hverrar sérgreinar fyrir sig.
Sjá almennt um sérnám í læknisfræði,¿upplýsingar um sérnám á Landspítala og á sjúkrahúsinu á Akureyri.