Erum að ráða lækna í sumarstarf
Heilsuvernd er ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, almennri heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir hjúkrunarheimili. Heilsuvernd rekur heilsugæsluna í Urðarhvarfi.
Heilsugæslan Urðarhvarfi er einkarekin heilsugæsla sem starfar undir merkjum Heilsuverndar. Heilsuvernd heilsugæslan er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Við leggjum áherslu á að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði fólks og efla heilbrigði og vellíðan. Heilsugæslan Urðarhvarfi býr yfir sérstaklega góðum starfsanda, samvinnu og metnaði starfsfólks.
Heilsuvernd heilsugæsla óskar eftir að ráða lækni í sumarstarf, um fullt starf er að ræða, eða eftir nánara samkomulagi. Almennur vinnutími er frá 8:00 til 16:00 ásamt stökum síðdegisvöktum á milli kl. 16:00 og 17:00.
- Almenn móttaka
- Læknisfræðileg ráðgjöf
- Vinna á hjúkrunarheimilum
- Trúnaðarlæknisstörf
- Heilsufarsskoðanir
- Heilsuefling
- Þátttaka í vísinda-, þróunar og gæðastarfi
- Íslenskt lækningaleyfi
- Sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
- Jákvæðni og rík þjónustulund
- Góð hæfni í samskiptum og teymisvinnu
- Almenn tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Góð færni í ensku og/eða öðrum tungumálum æskileg