

Verkefnastjóri fjölmenningar, Þjónustu- og þróunarsvið
Spennandi starf í kröftugu fjölmenningarsamfélagi
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða metnaðarfullan og hugmyndaríkan einstakling í starf verkefnastjóra fjölmenningar. Viðkomandi ber ábyrgð á starfsemi fjölmenningarmála í sveitarfélaginu. Um er að ræða áhugavert og spennandi starf þar sem unnið er þvert á svið og stofnanir bæjarins og með sterka tengingu við íbúa í fjölmenningarsamfélaginu Hafnarfirði.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Gerð kynningar- og upplýsingaefnis fyrir erlenda íbúa
- Vinnur náið með teymi sviðsins í almennum samskiptamálum og upplýsingagjöf
- Kemur að gerð fjölmenningarstefnu fyrir sveitarfélagið og annarri stefnumótun
- Gerð áætlunar um hvernig staðið skuli að móttöku nýrra íbúa
- Umsjón og stuðningur við fjölmenningarráð
- Ber ábyrgð á að fjölmenning sé sýnileg í viðburðum á vegum sveitarfélagsins
- Greinir upplýsingar um stöðu innflytjenda í sveitarfélaginu
- Samskipti vegna rannsókna, styrkja og þróunarverkefna á sviði málaflokksins
- Tengiliður við Fjölmenningarsetur og aðra þá aðila sem koma að málaflokknum
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- BA/BS/B.Ed gráða sem nýtist í starfi
- Viðbótardiplóma á sviði fjölmenningar og margbreytileika kostur
- Þekking á málefnum innflytjenda
- Þekking og reynsla af starfsemi sveitarfélaga og opinberri stjórnsýslu kostur
- Þekking og reynsla af verkefnastjórnun
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og rík þjónustulund
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Frumkvæði, nákvæmni og skipulagshæfileikar
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
- Önnur tungumálakunnátta sem nýtist í starfi æskileg
Nánari upplýsingar veitir Árdís Ármannsdóttir í gegnum netfangið: [email protected]
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Umsóknarfrestur er til og með 12. mars 2025.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar um að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.













































