Akureyri
Akureyri
Akureyri

Verkefnastjóri sumarhátíða hjá Akureyrarbæ

Þjónustu- og menningarsvið Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða verkefnastjóra sumarhátíða. Um er að ræða fullt starf með sveigjanlegum vinnutíma sem er tímabundið frá júní til ágúst 2025. Viðkomandi starfar með öflugu atvinnu-, menningar- og markaðsteymi bæjarins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoðar við framkvæmd hátíðarhalda á 17. júní og hefur umsjón með skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd Listasumars og Akureyrarvöku í samstarfi við verkefnastjóra menningarmála.
  • Tekur þátt í úrvinnslu styrkumsókna vegna hátíðanna.
  • Vinnur tíma- og verkáætlanir fyrir viðburði í samstarfi við þá sem fyrir þeim standa.
  • Vinnur með hönnuðum að gerð kynningarefnis.
  • Heldur úti kynningum á hátíðunum og einstökum viðburðum á samfélagsmiðlum, heimasíðum og með útsendingu fréttatilkynninga.
  • Tekur þátt í framkvæmd einstakra viðburða.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf (BA/BS/B.Ed.) sem nýtist í starfi.
  • Þekking og reynsla af menningarstarfi og skipulagningu viðburða er nauðsynleg.
  • Reynsla af markaðssetningu á samfélagsmiðlum.
  • Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í rituðu máli.
  • Góð enskukunnátta er nauðsynleg.
  • Sjálfstæði, gott frumkvæði og góð samskiptafærni.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt21. febrúar 2025
Umsóknarfrestur9. mars 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Geislagata 9, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar