Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Þroskaþjálfi - Öldutúnsskóli

Öldutúnsskóli auglýsir eftir þroskaþjálfa í fullt starf.

Í Öldutúnsskóla eru um 630 nemendur í 1.-10. bekk.

Í Öldutúnsskóla er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áherslu er lögð á teymisvinnu.

Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og grundvallast starf skólans af þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að veita nemendum með sérþarfir þjálfun, leiðsögn og stuðning
  • Vinna með félagsfærni og aðlaga námefni og námsaðstæður
  • Vinna að gerð sjónræns skipulags fyrir nemendur
  • Vinna að gerð einstaklingsnámskrám í samstarfi við kennara og deildarstjóra
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfi til að nota starfsheitið þroskaþjálfi (leyfisbréf fylgi umsókn).
  • Þekkingu og reynslu af vinnu með nemendum með þroskahömlun kostur.
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góða íslenskukunnátta

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn hafðu samband við okkur.

Umsóknarfrestur er til og með 5. mars 2025

Nánari upplýsingar veita Margrét Sverrisdóttir, skólastjóri, í síma 664-5894, [email protected] og Áslaug Hreiðarsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 555-1546, [email protected]

Greinargóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Auglýsing birt19. febrúar 2025
Umsóknarfrestur5. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Öldutún 9, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar