Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Sumarstörf á þjónustukjarna fyrir fatlað fólk - Drekavellir

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga starfsmenn í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, staðsett á Völlunum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.

Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Viðkomandi þarf að geta unnið morgun, kvöld, nætur og helgarvaktir. Við erum að leita að starfsfólki í tímabundið starf í sumar, með möguleika á fastráðningu í haust. Við leitum bæði eftir starfsfólki sem getur hafið störf sem fyrst, einnig eftir starfsfólki sem getur hafið störf um miðjan maí. Starfshlutfall er 80-100% starf í vaktavinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Hafa gaman í vinnunni, vera öðrum fyrirmynd og sýna frumkvæði
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
  • Almenn heimilisstörf
  • Samskipti við ýmsa þjónustuaðila
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Ágætis tölvukunnátta
  • Líkamleg geta til að sinna verkefnum á vinnustað
  • Ökuréttindi skilyrði

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.

Frekari upplýsingar um starfið Berglind Brynjarsdóttir, forstöðukona í síma: 544-2360, netfang: [email protected]

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 24.febrúar 2025.

Samkvæmt jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru karlar jafnt sem konur hvattir til að sækja um starfið.

Auglýsing birt13. febrúar 2025
Umsóknarfrestur24. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar