Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Steinahlíð

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í tímbundið starf á heimili fatlaðs fólks, staðsett í Steinahlíð.

Fjölbreytt og spennandi starf þar sem unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar með áherslu á að þjónustunotendum líði sem best.

Um er að ræða tímabundið starf í 80% og 40%, bæði helgar, kvöld og virka daga og vantar okkur starfsmann sem hafið getur störf sem fyrst. Möguleiki er á áframhaldandi starfi í sumar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja þjónustunotendur til þátttöku í samfélaginu
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Almenn heimilisstörf
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Framtakssemi og samviskusemi
  • Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
  • Líkamleg geta til þess að sinna krefjandi verkefnum á vinnustað

Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri og vera með hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Ólafsdóttir, Forstöðuþroskaþjálfi í síma: 565-5344, netfang: [email protected]

Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 28.01.2025

Með umsókn þarf að fylgja greinargóð ferilskrá .

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt14. febrúar 2025
Umsóknarfrestur28. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar