Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri - Leikskólinn Hörðuvellir

Leikskólinn Hörðurvellir óskar eftir að ráða deildarstjóra í fullt starf

Leikskólinn Hörðuvellir er fjögurra deilda leikskóli með um 75 börn á aldrinum ca 18 mán–6 ára. Hörðuvellir eru á fallegum útsýnisstað í hjarta bæjarins. Umhverfis lóðina eru Lækurinn og hraunið með fallegum lautum sem kjörið er til vettvangsferða og náttúruskoðunar.

Einkunnarorð leikskólans er: LEIKUR-REYNSLA -ÞEKKING, hinn frjálsi leikur er helsta námsleið barnanna í gegnum hann öðlast börnin reynslu og þekkingin eykst með árunum. Einnig er unnið að sameiginlegu átaki innan Hafnarfjarðar sem ber heitið“ Lestur er lífsins leikur.“

Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinnur að og ber ábyrgð á uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
  • Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni
  • Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á miðlun upplýsinga
  • Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og að öll börn fái kennslu og umönnun við hæfi
  • Ber ábyrgð á allri foreldrasamvinnu
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf sem kennari (Leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur
  • Færni í samskiptum og samstarfshæfileikar
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Fáist ekki starfsmenn með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019.

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Starfið er laust frá 1.4.2025

Upplýsingar um starfið veitir Sverrir Jörstad Sverrisson leikskólastjóri, [email protected], eða í síma 5550721/8994189.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Samband íslenskra sveitafélaga og KÍ v/Félags leikskólakennara.

Umsóknarfrestur er til og með 4.3.2025

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt19. febrúar 2025
Umsóknarfrestur4. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Tjarnarbraut 30, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar