Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliði - Öldutúnsskóli

Öldutúnsskóli auglýsir eftir skóla- og frístundaliða

Við í Öldutúnsskóla auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum skóla- og frístundaliða til starfa. Um er að ræða 50-70% starf.

Í Öldutúnsskóla er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áherslu er lögð á teymisvinnu

Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og grundvallast starf skólans af þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni. Skólinn leggur ríka áherslu á umhverfismál og hefur tekið á móti Grænfánanum fimm sinnum.

Í Öldutúnsskóla eru um 620 nemendur í 1. - 10. bekk.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoðar við faglegt starf með nemendum.
  • Stuðningur inn í bekk
  • Starfar samkvæmt leiðsögn frá næsta yfirmanni.
  • Stuðlar að góðum aga og jákvæðum samskiptum.
  • Stuðlar að velferð ungmenna í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Leitast við að virkja sem flesta óháð getu eða þroska í fjölbreytt verkefni og taka fullan þátt í þeim verkefnum og viðburðum sem eru skipulögð.
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla og áhugi af starfi með börnum og unglingum.
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Stundvísi og samviskusemi.
  • Góð íslenskukunnátta.

Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn hafðu endilega samband við okkur.

Nánari upplýsingar veitir Margrét Sverrisdóttir, skólastjóri, í síma 664-5894, og í gegnum tölvupóst [email protected] og Áslaug Hreiðarsdóttir; aðstoðarskólastjóri, [email protected]

Umsóknarfrestur er til 12. mars 2025

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Greinargóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við STH

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt26. febrúar 2025
Umsóknarfrestur12. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Öldutún 9, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (25)
Hafnarfjarðarbær
Sumarstarfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Öldugata
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Verkstjóri í vinnuskóla
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Þróunarfulltrúi grunnskóla - Mennta- og lýðheilsusvið
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skapandi sumarstörf
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Ráðgjafi í málefnum flóttafólks - Fjölskyldu- og barnamálasvið
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Forfallakennari - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sumarstarf á fjármálasviði
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri tómstundamiðstöðvar - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri - Leikskólinn Hörðuvellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á miðstigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Óskað er eftir sumarstarfsmanni á Læk athvarf
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari- Leikskólinn Hvammur
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Lækjarsel - Lækjarskóli 
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Þjónustufulltrúi – Umhverfis- og skipulagssvið
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Þroskaþjálfi - Hæfingarstöðin Bæjarhrauni
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Þroskaþjálfi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sumarstarfsmaður á skammtímadvöl - Hnotuberg
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Holtasel - Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Ráðgjafi í málefnum fatlaðs fólks og eldri borgara - Fjölskyldu- og barnamálasvið
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsmaður við félagsstarf aldraðra - Hraunsel
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Steinahlíð
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Forfallakennari - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sérkennari/þroskaþjálfi - Hraunvallaleikskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Afleysingastörf í grunnskólum og tónlistarskóla
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Fylgdarstarfsmaður í skólaakstur - Mennta- og lýðheilsusvið
Hafnarfjarðarbær