

Sumarstarf á fjármálasviði
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða sumarstarfsmann á fjármálasvið til ýmissa starfa innan reikningshalds- og uppgjörsdeildar, fjárreiðudeildar og hagdeildar. Við leitum að aðila sem er talnaglöggur og vel tölvufær. Reynsla af sambærilegu starfi er kostur. Starfið hentar vel fyrir nema í viðskiptafræði, hagfræði eða sambærilegu námi.
Fjármálasvið er eitt af stoðsviðum sveitarfélagsins og starfa 20 manns á sviðinu. Sviðinu er skipt í fjárreiðudeild, reikningshalds- og uppgjörsdeild, hagdeild, innkaupadeild og launadeild.
Um er að ræða 100% sumarstarf.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Skráningu reikninga og færsla bókhalds
- Afstemmingar
- Innheimta
- Ýmsar tölulegar greiningar
- Símsvörun og upplýsingagjöf í gegnum tölvupóst
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Stúdentspróf
- Almenn góð tölvukunnátta og góð kunnátta í Excel, Power Point og Power BI er kostur
- Reynsla af bókhaldsstörfum og fjárhagskerfinu Navision er æskileg
- Góð greiningarhæfni
- Nákvæmni í vinnubrögðum
- Jákvæðni, lausnarmiðuð hugsun og þjónustulund
- Geta til að vinna undir álagi
- Íslenskukunnátta
Nánari upplýsingar veitir og Andri Berg Haraldsson deildarstjóri reikningshalds- og uppgjörsdeildar [email protected] og Þórey Hallbergsdóttir deildarstjóri fjárreiðudeildar [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 17. mars 2024.
Greinagóð ferilskrá fylgi umsókn.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og STH.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.





































