Verkefnastjóri á sviði fræðslumála
Menntadeild Landspítala leitar að öflugum einstaklingi, til að leiða margvísleg verkefni og þróun á sviði fullorðinsfræðslu og starfsþróunar heilbrigðisstarfsfólks. Á menntadeild starfar fjölbreyttur hópur verkefnastjóra að sí- og endurmenntun klínísks heilbrigðisstarfsfólks þvert á spítalann, með það fyrir augum að bæta öryggi sjúklinga og starfsmanna og auka gæði þjónustunnar. Klínískt nám og þjálfun nemenda heilbrigðisvísindagreina og starfsfólks er snar þáttur í starfsemi spítalans, en menntadeildin er þar í farabroddi. Menntadeildin sér m.a. um rekstur og þróun kennslu - og hermisetur spítalans og innleiðingu stafræns fræðslukerfis sem nýverið var tekið í notkun, auk þess að koma að skipulagi klínísks náms.
Hafir þú þekkingu og áhuga á kennslufræði, skipulagshæfileika og getu til að starfa sjálfstætt gæti starfið hentað þér.
Starfshlutfall er 100% og er starfið laust frá 20. ágúst 2024 eða samkvæmt samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfa samkvæmt verklagi menntadeildar við endurskoðun, þróun og stjórn verkefna og uppfærslu fræðsluefnis
Stuðningur við stjórnendur og starfsfólk við val og gerð fræðsluefnis og nýtingu stafræns fræðslukerfis
Miðlun þekkingar m.a. í kennslufræði, framsetningu og gerð fræðsluefnis, skipulagningu, skráningu og mat námskeiða og stuðlar að því að námsmarkmið náist
Innleiðing, upplýsingagjöf og þjónusta vegna Eddu - fræðslukerfis Landspítala
Þverfagleg samvinna: Vinnur náið með stjórnendum, hagsmunaaðilum og leiðbeinendum þvert á deildir Landspítala
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun á sviði kennslu/menntunarfræða eða heilbrigðisvísindum. Meistarapróf æskilegt
Reynsla af kennslu eða fræðslu fullorðinna
Metnaður, frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt að flóknum verkefnum
Leiðtoga og skipulagshæfni, jákvæðni og lausnamiðuð nálgun
Færni í mannlegum samskiptum, upplýsingamiðlun og teymisvinnu
Þekking og skilningur á upplýsingatækni
Þekking á starfsumhverfi heilbrigðisstofnana er kostur
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli