Hjúkrunardeildarstjóri HERU
Við leitum eftir öflugum leiðtoga til að leiða og efla starfsemi HERU sérhæfðar líknarheimaþjónustu Landspítala í Kópavogi og byggja upp sterka liðsheild. Starfið er unnið í nánu samstarfi við forstöðuhjúkrunarfræðing krabbameinsþjónustu, framkvæmdastjóra og annað starfsfólk.
HERA veitir sjúklingum með erfið einkenni vegna langt genginna ólæknandi sjúkdóma sérhæfða þjónustu sem miðar að því að gera þeim kleift að vera sem lengst heima, sem og þeim sem óska þess að deyja heima. Þjónustan er veitt í heimahúsum á öllu höfuðborgarsvæðinu, með þjónustu allan sólarhringinn alla daga vikunnar. Vaktir eru frá kl 8-21 og bakvakt að nóttu. Þar starfa um 20 hjúkrunarfræðingar við fjölbreytt og krefjandi verkefni í nánu samstarfi við aðra fagaðila sem sinna sjúklingum þeirra. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar, öryggi sjúklinga og teymisvinna eru höfð í fyrirrúmi. HERA er hluti af hjarta- augn- og krabbameinsþjónustu Landspítala. Deildin er staðsett að Kópavogsgerði 4 í Kópavogi.
Hjúkrunardeildarstjóri þarf að búa yfir afburðahæfni í samskiptum og stuðla að teymisvinnu innan deildar og við aðra stjórnendur og samstarfsaðila. Deildarstjóri er yfirmaður hjúkrunar á deildinni, stjórnar daglegum rekstri og er leiðandi um hjúkrunarfræðileg málefni deildarinnar.
Hjúkrunardeildarstjóri er leiðtogi sem hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur hjarta- augn og krabbameinsþjónustu. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. september n.k. eða eftir samkomulagi.