Kvikmyndamiðstöð Íslands
Kvikmyndamiðstöð Íslands

Öflugur og drífandi framleiðslustjóri

Kvikmyndamiðstöð Íslands óskar eftir að ráða einstakling með faglegan styrk og þekkingu, metnað, frumkvæði, og framúrskarandi skipulags- og samskiptahæfni til að stýra aðkomu stofnunarinnar að framleiðslu og þróun á sviði kvikmyndagerðar.

Framleiðslustjóri ber ábyrgð á, og hefur umsjón með umsóknarferli, framgangi styrkveitinga, og undirbúningi ákvarðana í Kvikmyndasjóð, auk þess að taka þátt í mótun verklags og umbóta í innri ferlum og starfsháttum á afgreiðslu umsókna. Mikilvægt er að viðkomandi geti mótað starfshætti sem uppfylla kröfur vandaðrar stjórnsýslu, um leið og veitt er framúrskarandi þjónusta við umsækjendur til Kvikmyndasjóðs.

Reynsla af kvikmyndagerð, þekking á umhverfi fjármögnunar, samningagerðar, skjalagerðar vegna réttindamála, og á gæðakröfum sem líta að miðlun efnis, er mikilvæg. Ætlast er til að viðkomandi geti átt faglegt samtal við umsækjendur, samstarfsfólk, og aðrar sambærilegar erlendar stofnanir um málefni kvikmyndagerðar og kvikmyndamenningar, bæði á Íslandi og í alþjóðlegu samhengi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Móttaka og afgreiðsla umsókna í Kvikmyndasjóð
  • Samskipti við umsækjendur
  • Mat og greining á kostnaði og fjármögnun
  • Eftirlit með samningum til kvikmyndagerðar, m.a. varðandi réttindamál og fjármögnun
  • Umsjón með tölfræði sem tengist umsóknum og úthlutunum
  • Eftirlit með stöðu sjóðs í samráði við fjármálastjóra
  • Samskipti og samvinna við aðra erlenda sjóði sem styrkja kvikmyndagerð
  • Þátttaka í ýmsum alþjóðlegum vinnuhópum
  • Ýmis önnur tilfallandi verkefni

Menntun og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Mjög góð þekking á íslenskri kvikmyndagerð, kvikmyndamenningu og hagaðilum
  • Reynsla af verkefnastjórnun og kynningarstarfi er kostur
  • Reynsla af þátttöku í alþjóðlegu samstarfi er kostur
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Leiðtogafærni og framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni
  • Áhugi og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Færni í notkun algengra tölvuforrita og góð almenn tölvukunnátta nauðsynleg
  • Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli. Þriðja tungumál er kostur

KVIKMYNDAMIÐSTÖÐ ÍSLANDS

Kvikmyndamiðstöð Íslands gegnir lykilhlutverki í íslenskum kvikmynda- og sjónvarpsiðnaði með því að veita fjármagn til framleiðslu íslenskra kvikmynda og sjónvarpsverka, kynna íslenskar kvikmyndir á alþjóðlegum vettvangi og styðja við kvikmyndamenningu á Íslandi með margskonar hætti.

Kvikmyndamiðstöð Íslands leggur áherslu á lifandi og skemmtilegt starfsumhverfi með möguleika á aðkomu að fjölbreyttum og spennandi verkefnum tengdum stuðningi við kvikmyndir. Starfsfólk starfsstöðvar Kvikmyndamiðstöðvarinnar eru 7 talsins.

Nánari upplýsingar má finna á www.kvikmyndamidstod.is.

Athugið að um staðbundið starf er að ræða en Kvikmyndamiðstöð Íslands er staðsett á Hverfisgötu 54 í Reykjavík.

Umsóknarfrestur er til og með 2. júlí 2024. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) í síma 511 1225.

Auglýsing stofnuð18. júní 2024
Umsóknarfrestur2. júlí 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
EnskaEnskaMjög góð
Staðsetning
Hverfisgata 54, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.KvikmyndagerðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar