Sjúkraliði á hjartadeild
Hjartadeild 14E/G á Landspítala við Hringbraut óskar eftir að ráða jákvæða sjúkraliða/sjúkraliðanema í starfsnámi með ríka þjónustulund. Um er að ræða 60-100% starf í vaktavinnu. Starfið er laust frá 1. ágúst 2024 eða eftir nánara samkomulagi.
Hjartadeild er 34 rúma legudeild sem tilheyrir Hjarta-, æða- og krabbameinsþjónustu og er staðsett á 4. hæð á Landspítala á Hringbraut. Á deildinni sem er eina sérhæfða hjartadeildin á landinu starfar öflugur og áhugasamur hópur hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða. Góður starfsandi er ríkjandi sem og mikill faglegur metnaður og tækifæri til að vaxa í starfi. Lögð er áhersla á að taka vel á móti nýju fólki og veita góða einstaklingshæfða aðlögun.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.