Verkefnastjóri á hönnunar- og framkvæmdadeild
Hönnunar- og framkvæmdadeild Landspítala leitar að öflugum verkefnastjóra í okkar frábæra teymi, sem stendur fyrir breytingum, meiriháttar viðhaldi og þróun á fasteignum spítalans.
Deildin er á rekstrar- og mannauðssviði spítalans og sinnir heildstæðri verkefnastjórnun framkvæmdaverka frá frumhönnun til afhendingar. Verkefnin eru fjölbreytt, bæði innan og utanhúss og snúa bæði að byggingum og tækjum spítalans. Unnið er með notendum í klínískri starfsemi og öðrum hagsmunaaðilum. Deildin sér einnig um eignaumsýslu á fasteignum spítalans sem er með starfsemi í um 160.000 fermetrum, víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu.
Á deildinni starfa reynslumiklir verkefnastjórar og verkstjórar í frábæru starfsumhverfi. Við leitum að einstaklingi með háskólapróf sem nýtist í starfi, farsæla reynslu af verkefnastjórnun og brennandi áhuga á að vinna með stjórnendum, starfsfólki og aðilum innan og utan spítalans að framkvæmdum á spítalanum. Um ræðir tímabundið starf til a.m.k. 6 mánaða og er starfshlutfall 100%.