Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Akureyri (HA) var stofnaður árið 1987. Frá upphafi hefur vöxtur HA verið hraður. Námsframboð hefur aukist jafnt og þétt. Nemendum og starfsfólki hefur fjölgað. Ýmsir samstarfsaðilar hafa komið til og byggingar hafa risið.
Verkefnastjóri frumkvöðla og nýsköpunar
Háskólinn á Akureyri (HA) óskar eftir að ráða verkefnastjóra frumkvöðla og nýsköpunar í fullt starf til eins árs með möguleika á framlengingu um eitt ár. Í boði er spennandi starf í metnaðarfullu og lifandi háskólaumhverfi. Starfið er fjölbreytt og verkefnin breytileg eftir tímabilum. Starfið felur í sér umsjón með tengslum skólans við atvinnulífið ásamt nýsköpunar- og sprotaumhverfi Háskólans.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fjölþætt samskipti og samstarf við deildir og stúdenta sem tengjast nýsköpunar- og frumkvöðlaumhverfi skólans og samstarfsaðila.
- Umsjón með nýsköpunarhröðlum við Háskólann á Akureyri.
- Umsjón með og skipulag verkefna, funda og viðburða.
Verkefnastjórinn mun taka þátt í að byggja upp frumkvöðla- og nýsköpunarstarf á Eyjafjarðarsvæðinu. Starfsstöðin er á Akureyri, við HA og að Strandgötu 1. Næsti yfirmaður er forstöðumaður Miðstöðvar doktorsnáms og stjórnsýslu rannsókna. Starfið er veitt þann 1. janúar 2025.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf BA/BS eða sambærilegt sem nýtist í starfi. Meistarapróf er kostur.
- Mikið frumkvæði, frjó hugsun og sjálfstæði í stýringu verkefna.
- Mjög góð þekking á íslensku atvinnulífi er æskileg og þekking og reynsla af nýsköpun á alþjóðlegum vettvangi er kostur.
- Reynsla af skipulagi verkefna og verkefnastjórnun er skilyrði.
- Reynsla af vistkerfi nýsköpunar er kostur.
- Góð þekking á starfsemi háskóla er kostur.
- Skipulögð og vönduð vinnubrögð.
- Lipurð í mannlegum samskiptum, jákvæðni, rík þjónustulund, og góð hæfni til samstarfs.
- Mjög gott vald á íslensku og ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli.
- Geta til að halda kynningar á ensku og íslensku um málefni tengd starfinu.
- Góð almenn tölvu- og tækniþekking.
Auglýsing birt20. september 2024
Umsóknarfrestur8. október 2024
Tungumálahæfni
EnskaMjög góð
ÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Norðurslóð 202123, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHugmyndaauðgiJákvæðniMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagTeymisvinnaVerkefnastjórnunÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Sérfræðingar á skrifstofu fjármála og rekstrar
Dómsmálaráðuneytið
Verkefnastjóri í upplýsingatækni
Landsnet hf.
Verkefnastjóri á hönnunar- og framkvæmdadeild
Landspítali
Verkefnastjóri umhverfismála
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga
Velferðarsvið: Ráðgjafi við móttöku flóttafólks
Akureyri
Sérfræðingur í úttektum á stjórnkerfistöðlum
BSI á Íslandi ehf.
Sérfræðingur á sölu- og þjónustusviði
BSI á Íslandi ehf.
Deildarstjóri verkefnastofu (PMO)
Icelandair
Verkefnastjóri gæðamála
Vegagerðin
Verkefnastjóri farsældar á Norðurlandi eystra
Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra
Framleiðslustjóri
Signa ehf
Aðstoðarrekstrarstjóri
Dropp