Sérnámstöður í öldrunarlækningum
Lausar eru til umsóknar sérnámsstöður í öldrunarlækningum til tveggja ára. Um er að ræða viðbótarsérnám við heimilislækningar eða undirsérgrein lyflækninga og er það forkrafa að vera með sérfræðileyfi í annarri þeirra sérgreina.
Sérnámið er byggt á marklýsingu Royal Colleges of Physicians Training Board í Bretlandi og vottað af mats- og hæfisnefnd Heilbrigðisráðuneytisins í samræmi við reglugerð 856/2023. Sérnám fer fram á Landspítala en það er mögulegt að taka hluta á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Upphafsdagur ráðningar er 3. júní 2024 en þriðjudaginn 4. júní er móttökudagur sérnáms, annars getur upphaf starfs verið samkvæmt samkomulagi við kennslustjóra hverrar sérgreinar fyrir sig.
Sjá .
Sjá almennt um sérnám í læknisfræði, og .
Menntunar- og hæfniskröfur
Hafa lokið sérnámi í heimilislækningum eða lyflækningum við upphaf sérnáms
Íslenskt sérfræðilækningaleyfi
Áhugi á að starfa við viðkomandi sérgrein
Lágmarkskunnátta í íslensku, nema samkomulag sé um annað
Fyrri starfsreynsla, reynsla af vísinda-, umbóta- og gæðastörfum æskileg
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
Áreiðanleiki, stundvísi og árangursmiðað viðhorf
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna og nám á legudeildum og göngudeildum ásamt vaktþjónustu
Þátttaka í ráðgjafaþjónustu undir handleiðslu sérfræðilækna
Kennsla lækna í sérnámsgrunni, læknanema og annarra fagstétta heilbrigðisstarfsfólks
Þátttaka í gæða- og vísindavinnu
Sérnámslæknir ber sjálfur ábyrgð á fullri þátttöku í öllum þáttum sérnáms og skrásetningu þess í samræmi við marklýsingu og skráningarkerfi
Framgangur milli námsára er ákvarðaður með árlegu framvindumati