Sérnámsstöður í heimilislækningum við HSU
Heilbrigðisstofnun Suðurlands auglýsir stöður sérnámslækna í heimilislækningum við heilsugæsluna á Selfossi. Námið er byggt á marklýsingu fyrir sérnám í heimilislækningum og jafnframt taka sérnámslæknar vikulega þátt í fræðilegu námi og fyrirlestrum með öðrum sérnámslæknum í Reykjavík (hálfur dagur á viku).
Um er að ræða 100% starf og er næsti yfirmaður er yfirlæknir heilsugæslu við starfsstöðina.
Frábært tækifæri til að öðlast víðtæka reynslu með fjölbreyttu starfi heilsugæslu á landsbyggðinni.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands veitir heilsugæslu-, sjúkrahúss- og öldrunarþjónustu, auk þess að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.
Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.
Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.
- Almennar lækningar, heilsuvernd og leiðbeiningar til skjólstæðinga og aðstandenda
- Almenn vaktþjónusta og bráðaþjónusta sem tengist heilsugæslunni á Selfossi
- Virkur þáttakandi í uppbyggingu og framþróun heilsugæslu ásamt fræðslu og vísindastarfi á stöðugt stækkandi heilbrigðisstofnun
- Þátttaka í verkefnum starfsstöðvar. þar sem áhersla er lögð á nýsköpun og framþróun
- Íslenskt lækningaleyfi er skilyrði
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Hæfni í tjáningu í ræðu og riti
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf