Aðstoðardeildarstjóri aðfangaþjónustu
Aðfangaþjónusta Landspítala auglýsir eftir öflugum aðstoðardeildarstjóra til að taka þátt í að leiða áfram þá þjónustu sem aðfangaþjónusta Landspítala veitir. Starfið er laust strax eða eftir samkomulagi. Starfshlutfall er 100%.
Aðfangaþjónusta heyrir undir rekstrar- og mannauðssvið og ber ábyrgð á aðfangakeðjunni fyrir vörur og lín á Landspítala. Aðfangaþjónusta rekur vöruhús, þvottahús, vörumóttökur, flutningaþjónustu og deildaþjónustu sem þjónustar deildir spítalans.
Leitað er eftir einstaklingi með framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfni, farsæla stjórnendareynslu, hæfni til að móta jákvætt starfsumhverfi og byggja upp sterka liðsheild.¿Viðkomandi skal búa yfir frumkvæði, eldmóði og brennandi áhuga á aðfangakeðjustjórnun og að starfa með stjórnendum, starfsfólki og aðilum innan og utan spítalans að framþróun og umbótum í þeirri þjónustu sem deildin veitir.
Aðstoðardeildarstjóri aðfangaþjónustu vinnur náið með deildarstjóra aðfangaþjónustu en deildin samanstendur af 200 manns sem veita mikilvæga þjónustu við deildir spítalans.
- Skipuleggur, stjórnar og ber ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri í samráði við deildarstjóra
- Styður framlínustjórnendur í daglegum störfum eftir þörfum
- Stuðlar að jákvæðum starfsanda, starfsumhverfi og samskiptum við stjórnendur, starfsmenn og aðra hagsmunaaðila
- Staðgengill deildarstjóra aðfangaþjónustu
- Stuðlar að stöðugum umbótum og framþróun þjónustu
- Stuðlar að því að sett markmið náist um góða þjónustu og ábyrgan rekstur
- Greining á ferlum og gögnum
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði, viðskiptafræði
- Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða iðnaðar æskileg
- Stjórnunarreynsla úr sambærilegum rekstri æskileg
- Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar, jákvætt lífsviðhorf og lausnamiðuð nálgun
- Fagleg vinnubrögð, skipulagshæfni og afburða góð greiningafærni
- Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun
- Metnaður og geta til að starfa sjálfstætt og í teymum