Vörustjóri á Brjóstamiðstöð / Stafrænni framþróun
Á Brjóstamiðstöð / Stafrænni framþróun er laust starf vörustjóra. Vörustjóri er hluti af teymi innan Stafrænnar þróunar en starfar fyrst og fremst á Brjóstamiðstöð Landspítala.
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum liðsmanni til að sinna fjölbreyttum og krefjandi verkefnum á sviði heilbrigðis- og upplýsingatækni. Viðkomandi þarf að vera hugmyndaríkur, jákvæður og lausnamiðaður og eiga auðvelt með að vinna í teymi. Starfið er laust 1. október 2024 eða eftir nánara samkomulagi.
Brjóstamiðstöð er innan hjarta-, augna- og krabbameinsþjónustu Landspítala og starfa þar um 700 starfsmenn í 460 stöðugildum. Á sviðinu starfa margar heilbrigðisstéttir og þar er veitt þjónusta fyrir mörg af algengustu og alvarlegustu heilsufarsvandamálum landsmanna. Stafræn framþróun er innan þróunarsviðs og þar starfa um 100 starfsmenn sem styðja við þjónustu spítalans m.a. með tæknilegri aðkomu, verkefnastjórnun, þróun nýrra lausna og nýsköpun.
Menntunar- og hæfniskröfur
MS háskólagráða í verkfræði, tölvunarfræði eða sambærilegt
Starfsreynsla á sviði heilbrigðisverkfræði er kostur
Þekking og reynsla af vörustýringu og verkefnastjórnun, reynsla af verkefnum á sviði heilbrigðis- og/eða upplýsingatækni er kostur
Framúrskarandi samskiptahæfileikar
Hæfni til að miðla upplýsingum til ólíkra hópa
Sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð
Hæfileiki til að tileinka sér nýjungar
Jákvætt og hvetjandi viðmót
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón og eftirlit með lækningatækjum og hugbúnaðarkerfum Brjóstamiðstöðvar
Þróun og samþætting hugbúnaðarkerfa sem notaður er innan miðstöðvarinnar í takt við þarfir starfseminnar
Eftirfylgd með úttektum Geislavarna
Kortlagning og skjalfesting á ferlum í brjóstamyndgreiningu ásamt úttekt og eftirliti með mælikvörðum og gæðavísum sem þjónustan byggir á
Náið samstarf við stjórnendur við uppbyggingu gæðakerfis (EUSOMA) og skjalfestingu verklags í gæðahandbók Landspítala
Þróun á tæknilausnum fyrir ferli brjóstaskimana