Verkefnastjóri á framkvæmdadeild
Vegagerðin auglýsir eftir öflugum einstaklingi til að sinna verkefnastjórn stórra verka í nýbyggingu og viðhaldi samgöngumannvirkja á framkvæmdadeild Vegagerðarinnar í Garðabæ.
Starf verkefnastjóra á framkvæmdadeild felst í stjórnun viðhalds- og nýframkvæmda þ.m.t. gerð áætlana, útboðs- og verklýsinga, fjárhagslegt og tæknilegt eftirlit, uppgjör verka og gerð skilamata. Verkefnastjóri vinnur að gæða- og umbótastarfi innan deildarinnar í samráði við forstöðumann.
· Verkfræðingur, tæknifræðingur eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
· Meistarapróf æskilegt
· Marktæk reynsla af verkefnastjórnun
· Reynsla af verkefnastjórnun stærri verkefna æskileg
· Reynsla af umbóta- og gæðamálum æskileg
· Skipulagshæfni, frumkvæði og faglegur metnaður
· Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu
· Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
· Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
· Hæfni til að fylgja málum eftir og til að finna bestu lausnir hverju sinni.
· Góð öryggisvitund