Five Degrees Software ehf
Five Degrees Software ehf er leiðandi í gerð hugbúnaðar fyrir fjármálamarkað.
Höfuðstöðvar Five Degrees eru í Hollandi og er félagið í örum vexti í Evrópu og N-Ameríku. Hugbúnaðarteymi eru einnig staðsett í Portúgal og Víetnam. Starfsfólk á Íslandi vinnur með fólki í öllum þessum löndum að margvíslegum verkefnum, m.a., að skýjalausnum Five Degrees í Azure.
Starfstöðvar á Íslandi eru tvær, í Kópavogi og á Akureyri. Á báðum stöðum er lagður mikill metnaður í gott starfsumhverfi og að verkefnin sem unnin eru séu bæði fjölbreytt og krefjandi.
Teymisstjóri / Scrum master
Ert þú jákvæð og drífandi manneskja með góðan skilning á þróunarferlum tölvukerfa, reynslu af verkefnastýringu og ert spennt/ur fyrir að vinna í litlu og sjálfstæðu teymi að fjármálahugbúnaði framtíðarinnar? Þá erum við hjá five°degrees að leita að þér til að leiða og skipuleggja vinnu fyrir þróunarteymi hjá okkur.
Við notum Jira og Confluence fyrir verkbeiðnir og skjölun. Við hugbúnaðarþróunina nýtum við okkur fyrst og fremst Microsoft tækni, svo sem Azure, .net, C#, Fluent UI og SQL Server.
Við hvetjum öll kyn til að sækja um starfið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg samhæfing vinnu starfsmanna í dreifðum teymum
- Stýring þróunarteymis samkvæmt Scrum hugmyndafræðinni
- Regluleg samtöl og endurgjöf til teymisfélaga
- Þátttaka í mótun og þróun hugbúnaðarlausna
- Þátttaka í stöðugum umbótum á verklagi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæði í vinnubrögðum, lausnamiðuð nálgun og færni til að sjá heildarmyndina
- Skipulagshæfni
- Þekking og reynsla af Jira og Confluence er kostur
- Þekking og reynsla af Agile og Scrum
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Góð enskukunnátta er skilyrði
Fríðindi í starfi
- Létt snarl, kaffi og mötuneyti
- Símastyrkur
- Búningsaðstaða og sturtur
- Íþróttastyrkur eða samgöngustyrkur
- Sveigjanlegur vinnutími
Auglýsing birt13. september 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaMjög góð
Staðsetning
Hlíðasmári 12, 201 Kópavogur
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (8)
Teymisstjóri fasteignaþjónustu
Landspítali
Hugbúnaðarsérfræðingur
KS
Verkefnastjóri veflausna
Advania
Scheme Relations Specialist
Rapyd Europe hf.
Vörustjóri hugbúnaðarlausna á þróunarsviði
Landspítali
UT kennsluráðgjafi - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær
Vörustjóri á Brjóstamiðstöð / Stafrænni framþróun
Landspítali
Verkefnastjóri
Micro Ryðfrí smíði