Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

UT kennsluráðgjafi - Setbergsskóli

Setbergsskóli óskar eftir að ráða UT kennsluráðgjafa, starfið er 50% en möguleiki að fara í 100% vinnu með kennslu.

Ráðið er í stöðuna frá 1. október 2024.

Setbergsskóli var stofnaður árið 1989 og eru nemendur um 430 talsins auk þess sem við skólann er starfrækt sérdeild fyrir börn með einhverfu. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi sem býður upp á mikla möguleika til útiveru.

Góður starfsandi og jákvæð samskipti einkenna starfmannahópinn og er vellíðan nemenda og starfsfólks ávallt höfð að leiðarljósi. Við skólann er unnið metnaðarfullt starf með sérstakri áherslu á fjölbreytt námsumhverfi, læsi, sköpun, lýðræði og uppbyggjandi endurgjöf. Allir nemendur í 5. - 10. bekk hafa spjaldtölvur til umráða og yngri nemendur hafa einnig aðgang að slíkum tækjum.

Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vellíðan og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Nánari upplýsingar um skólann og það öfluga starf sem þar er unnið er að finna á heimasíðu skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð:

§ Verkumsjón með spjaldtölvum skólans í samráði við tölvudeild bæjarins.

§ Veitir starfsfólki skóla kennsluráðgjöf á starfssviði sínu, upplýsingatækni með áherslu á spjaldtölvunotkun (iPad).

§ Aðstoðar við gerð kennsluáætlana og tekur þátt í skólanámskrárgerð er snertir upplýsingatækni.

§ Fylgir eftir stefnumótun skólans á sviði upplýsingatækni í skólastarfi og í samstarfi við þróunar- og tölvudeild Hafnarfjarðarbæjar og skrifstofu mennta- og lýðheilsusviðs.

§ Sinnir umsýslu spjaldtölva skólans svo þær nýtist í kennslufræðilegum tilgangi og aðstoðar nemendur við notkun spjaldtölva.

§ Er þróunar- og tölvudeild til aðstoðar við lausn tæknilegra vandamála sem geta komið upp innan skóla. Er tengiliður við þróunar- og tölvudeild um lausn tæknilegra vandamála sem geta komið upp innan skólans.

§ Er skólastjórnendum til ráðgjafar varðandi upplýsinga- og samskiptatækni í grunnskólastarfi.

§ Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni og tengjast starfssviði hans.

Menntunar- og hæfniskröfur:

§ Leyfisbréf kennara

§ Framhaldsmenntun á sviði verkefnastjórnunar og/eða upplýsingatæknimenntunar æskileg

§ Sem víðtækust kennslureynsla í grunnskóla

§ Reynsla af verkefnastjórnun æskileg

§ Reynsla af kennsluráðgjöf æskileg

§ Mjög góð íslenskukunnátta

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri, í síma 5651011 eða í gegnum netfangið maria@setbergsskoli.is

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.setbergsskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 19. september n.k.

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt6. september 2024
Umsóknarfrestur19. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Hlíðarberg 2, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar