Sunnulækjarskóli, Selfossi
Sunnulækjarskóli, Selfossi
Sunnulækjarskóli, Selfossi

Sérkennari í Sunnulækjarskóla

Auglýst er 100% staða sérkennara í Sunnulækjarskóla

Sunnulækjarskóli auglýsir eftir drífandi og kraftmiklum sérkennara. Sérkennari veitir til dæmis leiðsögn og ráðgjöf til foreldra, kennara og annarra starfsmanna ásamt því að kenna og styðja við nám nemenda er þurfa á sértækum stuðningi að halda.

Í Sunnulækjarskóla vinna allir í teymum. Þannig nýtum við styrkleika og margbreytileika hópsins betur og margar hendur vinna létt verk. Umsjónarkennarar og fagaðilar innan árgangs mynda árgangateymi sem og list- og verkgreinakennarar, íþróttakennarar og sérkennarar ásamt þroska- og iðjuþjálfum. Árgangateymin framkvæma og stjórna daglegu skólastarfi tiltekinna árganga eða námshópa í samvinnu við sína deildarstjóra. Góð teymisvinna er liður í að byggja upp sterkt lærdómssamfélag í skólanum.

Setrið er deild í Sunnulækjarskóla. Deildin veitir nemendum með sérþarfir fjölbreytt nám sem tekur mið af þörfum þeirra og stöðu. Áhersla er lögð á að nemendur geti þroskað persónuleika sinn, hæfileika og sköpunargáfu, ásamt andlegri og líkamlegri getu og verið félagslega virkir þátttakendur í skólasamfélaginu þar sem byggt er á styrkleikum þeirra.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fylgjast með velferð nemenda, hlúa að þeim andlega og líkamlega í samfræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einskaklingar
  • Sinnir kennslu sem tekur mið af þörfum nemenda og aðstæðum
  • Sérkennari annast skipulagningu sérkennslu í samstarfi við deildarstjóra og annað starfsfólk
  • Ber ábyrgð á að tryggja öryggi og verlferð nemenda sinna
  • Sérkennari vinnur í nánu samstarfi við samstarfsteymi og foreldra/forráðamenn nemenda í samráði við deildarstjóra
  • Kemur að gerð einstaklingsnámsskráa í samstarfi við annað starfsfólk, umsjónarkennara og deildarstjóra
  • Veitir faglega ráðgjöf og liðsinni til foreldra, kennara og starfsfólks varðandi námsefni og kennsluaðferðir
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf grunnskólakennara
  • Framhaldsmenntun á sviði kennslu- og uppeldisfræða eða sérkennslu er æskileg
  • Hæfni og áhugi á skólastarfi
  • Þekking á skipulagðri kennslu (TEACCH) er æskileg
  • Kennslureynsla og reynsla af sérkennslu æskileg
  • Reynsla af teymisvinnu æskileg
  • Færni í mannslegum samskiptum og samvinnu
  • Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæði
  • Faglegur metnaður og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi 
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Auglýsing birt16. september 2024
Umsóknarfrestur26. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Norðurhólar 1, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar