Fjarðabyggð
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð

Frístundarleiðbeinandi í félagsmiðstöðvar Fjarðabyggðar

Frístundaleiðbeinandi tekur þátt í skipulagningu og framkvæmd félagsmiðstöðvastarfs í Fjarðabyggð í nánu samstarfi við deildastjóra frístunda barna og unglinga.

Markmið starfsins er að bjóða upp á heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi frítímastarfs eru höfð að leiðarljósi. Í því felst að skapa umhverfi og aðstæður þar sem hægt er að þjálfa lykilfærni hjá börnum og unglingum með áherslu á samskiptafærni, félagsfærni, virkni og þátttöku ásamt styrkingu sjálfsmyndar.

Um er að ræða 1-3 vaktir í viku að kvöldi til.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sinnir vöktum í félagsmiðstöðvum.
  • Skipuleggur og mótar frítímastarf fyrir börn og unglinga í samstarfi við deildarstjóra frístunda barna og unglinga.
  • Sækir viðburði með börnum og unglingum á vegum félagsmiðstöðva..
  • Vinnur faglegt starf með börnum og unglingum í frítímastarfi.
  • Vinnur markvisst að því að auka sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra sem taka þátt í starfseminni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Æskilegt að frístundaleiðbeinandi hafi menntun sem nýtist í starfi. Til dæmis menntun tengda uppeldisfræðum eða fræðslu- og frístundum.
  • Reynsla af starfi með börnum og ungmennum er nauðsynleg og þekking á málaflokknum æskileg.
  • Færni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í störfum.
  • Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
Auglýsing birt16. september 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMeðalhæfni
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar