Strendingur ehf.
Strendingur ehf. verkfræðiþjónusta er einkahlutafélag, stofnað 26. janúar 1995.
Frá stofnun hefur Strendingur veitt fjölbreytta ráðgjöf við mannvirkjagerð eins og við hönnun, framkvæmd útboða, umsjón og eftirlit, innkaupa á vörum og -þjónustu, stjórnun framkvæmda, byggingarstjórn, rannsóknir og mælingar. Gerð verkefna nær frá minni húsbyggingum upp í stærri fjölbýlishús, skóla, íþróttahús, sundlaugar, iðnaðar- og annað atvinnuhúsnæði, íbúðagötur, þjóðvegi, brýr, hafnir, sjófyllingar, virkjanir o.fl.
Strendingur ehf. vinnur eftir vottuðu gæðakerfi samkvæmt stöðlunum ISO 9001, ISO 14001 og ISO 45001
Verkfræðingur
Strendingur ehf. verkfræðiþjónusta óskar eftir að ráða verkfræðing til starfa. Verkefni eru fjölbreytt og geta falist í burðarþols-, lagna- og loftræsihönnun, hönnunarstjórnun, byggingarstjórnun, verkefnastjórnun, umsjón og eftirlit o.fl. allt eftir reynslu og menntun viðkomandi. Í boði er spennandi starf hjá öflugu fyrirtæki þar sem hópur sérfræðinga fæst við ráðgjafaþjónustu á byggingarsviði. Starfsstöð Strendings er að Dalshrauni 3, Hafnarfirði.
Framundan eru mörg umfangsmikil og áhugaverð verkefni sem snúa m.a. að framkvæmdum við skóla, íþróttahús, sundlaugar, gatna- og hafnargerð, virkjanir auk íbúðar og iðnaðarbygginga.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði verk- eða tæknifræði
- Reynsla af hönnun, umsjón og eftirliti og/eða stjórnun framkvæmda er kostur
- Frumkvæði og faglegur metnaður
- Skipulögð og öguð vinnubrögð í starfi
- Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu
- Jákvætt viðmót og lipurð í mannlegum samskiptum
Auglýsing birt11. september 2024
Umsóknarfrestur1. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaByrjandi
Staðsetning
Dalshraun 3, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Verkefnastjóri í upplýsingatækni
Landsnet hf.
Sérfræðingur á sviði samfélags og umhverfis
Landsvirkjun
Operation and Maintenance Engineer
Carbfix
Deildarstjóri á Mannvirkjasviði
Norconsult Ísland ehf.
Forstöðumaður Viðskiptaeftirlits
Íslandsbanki
DSP development Technician (R&D)
Alvotech hf
Tæknimaður / Skoðunarmaður á skipasviði
BSI á Íslandi ehf.
Eftirlit með framkvæmdum á Suðurlandi
EFLA hf
Deildarstjóri fjárstýringar
RARIK ohf.
Senior Operations Engineer - DCS & Controls
Climeworks
Verkefnastjóri á framkvæmdadeild
Vegagerðin
Sérfræðingur í BREEAM fyrir nýframkvæmdir
Isavia / Keflavíkurflugvöllur