Yfirlæknir á réttar- og öryggisgeðdeildum
Starf yfirlæknis réttar- og öryggisgeðþjónustu Landspítala er laust til umsóknar. Þjónustan samanstendur af tveimur legudeildum og göngudeildarteymi sem sinnir sérhæfðri eftirfylgd og meðferð. Áhersla er á þverfaglegt samstarf í starfseminni. Yfirlæknir er leiðtogi geðlæknaþjónustunnar á einingunni og ber faglega stjórnunarábyrgð. Yfirlæknir gegnir einnig mikilvægu hlutverki í kennslumálum og uppbyggingu vísindastarfs geðþjónustunnar. Næsti yfirmaður er Páll Matthíasson, yfirlæknir meðferðareiningar geðrofssjúkdóma.
Leitað er eftir geðlækni með víðtæka reynslu og hæfni til að leiða þjónustu við sjúklinga, umbótastarf og öryggismál í nánu samstarfi við yfirlækni meðferðareiningar geðrofssjúkdóma, deildarstjóra réttar- og öryggisgeðdeilda, forstöðulækni, framkvæmdastjóra og annað starfsfólk. Gerð er krafa um helgun í starfi faglegs yfirlæknis. Ráðið er í starfið frá 15. nóvember 2024 eða eftir samkomulagi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt sérfræðileyfi í geðlækningum er skilyrði
Víðtæk reynsla af meðhöndlun ósakhæfra einstaklinga sem og lögræðissviptra einstaklinga æskileg
Framúrskarandi fagleg færni
Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar
Reynsla af kennslu og vísindastörfum og sýn til framtíðar á þeim sviðum
Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Helstu verkefni og ábyrgð
Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun geðlækninga á réttar- og öryggisgeðdeildum, þ.m.t. kennslumálum og vísindastarfi, í samráði við yfirlækni á meðferðareiningu geðrofssjúkdóma, forstöðulækni, framkvæmdastjóra geðþjónustu og framkvæmdastjóra lækninga
Vinnur í samstarfi við aðra stjórnendur og starfsfólk að uppbyggingu og þróun þjónustu
Ber ábyrgð á umbótastarfi, setur markmið um öryggis- og gæðastarf og tryggir eftirfylgd
Almenn sérfræðilæknisstörf á réttar- og öryggisgeðdeildum
Sérfræðiráðgjöf á Landspítala og til annarra stofnana og fagaðila