Matreiðslumaður í veitingaþjónustu Landspítala
Veitingaþjónusta Landspítala auglýsir laust til umsóknar starf matreiðslumanns. Veitingaþjónustan heyrir undir rekstrar- og mannauðssvið og rekur eitt stærsta framleiðslueldhús á Íslandi en þar eru daglega framleiddar um 6.000 máltíðir fyrir sjúklinga, aðstandendur og starfsfólk.
Veitingaþjónusta rekur eitt stærsta framleiðslueldhús á Íslandi en þar eru daglega framleiddar um 6000 máltíðir fyrir sjúklinga, aðstandendur og starfsfólk. Deildin starfrækir jafnframt 10 matsali og 2 kaffihús undir nafninu ELMA matsalir. Hjá veitingaþjónustu Landspítala starfa rúmlega 100 einstaklingar í samhentri deild og fást þar við fjölbreytt og skemmtileg verkefni. Dæmi um einingar innan veitingaþjónustu eru t.d. framleiðslueldhús, sjúkraheldhús og ELMA matsalir Landspítala.
Leitað er eftir drífandi einstaklingi með ríka þjónustulund og framúrskarandi samskiptahæfni. Viðkomandi þarf að búa yfir mikilli samskiptahæfni og getu til að mæta þörfum ólíkra hópa, hafa auga fyrir umbótum og stuðla að jákvæðum starfsanda og starfsumhverfi á fjölþjóðlegum vinnustað. Starfið er fjölbreytt, skemmtilegt og býður upp á lifandi starfsumhverfi. Starfið er laust samkvæmt samkomulagi.