Yfirlæknir á móttökugeðdeild 33C
Laus er til umsóknar staða yfirlæknis á móttökugeðdeild 33 C hjá geðþjónustu Landspítala. Yfirlæknir er leiðtogi geðlæknaþjónustunnar á einingunni og ber þríþætta ábyrgð: faglega, fjárhagslega og stjórnunarlega. Yfirlæknir gegnir einnig mikilvægu hlutverki í kennslumálum og uppbyggingu vísindastarfs geðþjónustunnar. Næsti yfirmaður er Halldóra Jónsdóttir, forstöðulæknir geðþjónustu Landspítala.
Móttökugeðdeild er 17 rúma legudeild sem sinnir móttöku, greiningu og meðferð sjúklinga með alvarlegar og bráðar geðraskanir. Deildin sérhæfir sig m.a. í meðferð sjúklinga með lyndisraskanir, átraskanir og í greiningu og meðferð á konum með alvarlegar geðraskanir á meðgöngu og eftir fæðingu. Meðferðin er einstaklingsmiðuð og þjónustan byggir á þverfaglegri teymisvinnu og samstarfi við aðstandendur.
Leitað er að geðlækni með víðtæka reynslu og hæfni til að leiða þjónustu við sjúklinga, umbótastarf, öryggismál og uppbyggingu mannauðs í nánu samstarfi við deildarstjóra móttökugeðdeildar, forstöðulækni, framkvæmdastjóra og annað samstarfsfólk. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. desember 2024 eða eftir nánari samkomulagi. Gerð er krafa um helgun í starfi.
- Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun geðlækninga á mótttökugeðdeild 33C, þ.m.t. kennslumálum og vísindastarfi, í samráði við forstöðulækni, framkvæmdastjóra geðþjónustu og framkvæmdastjóra lækninga
- Fjárhagslega ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði og áætlanagerð einingarinnar
- Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna
- Vinnur í samstarfi við aðra stjórnendur og starfsfólk að uppbyggingu og þróun geðþjónustu Landspítala
- Ber ábyrgð á umbótastarfi, setur markmið um öryggis- og gæðastarf og tryggir eftirfylgd
- Almenn sérfræðilæknisstörf á mótttökugeðdeild
- Sérfræðiráðgjöf á Landspítala og til annarra stofnana og fagaðila
- Íslenskt sérfræðileyfi í geðlækningum er skilyrði
- Framúrskarandi fagleg færni
- Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar
- Reynsla af stjórnun er kostur
- Reynsla af kennslu og vísindastörfum og sýn til framtíðar á þeim sviðum
- Jákvætt viðmót og mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri