Hjúkrunarfræðingur á speglunardeild Hringbraut
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á speglunardeild Landspítala. Starfið er tímabundið til eins árs vegna fæðingarorlofs. Sarfshlutfall er 80-100%, og er starfið laust frá 1. nóvember 2024 eða eftir nánara samkomulagi.
Samhliða almennum hjúkrunarstörfum eru í boði fjölbreytt og sérhæfð verkefni sem einungis eru unnin á speglunareiningu. Starfsemin fer aðallega fram á dagvinnutíma en neyðarþjónusta fer fram á bakvöktum.
Speglunareiningin sinnir bæði almennum speglunum en er einnig sú sérhæfðasta á landinu og sinnir því sjúklingum alls staðar að. Á deildinni starfar um 30 manna hópur samhentra starfsmanna, í nánu samstarfi við marga sérfræðinga Landspítala. Starfsstöðvar eru tvær, við Hringbraut þar sem stærri hluti speglana fer fram og í Fossvogi. Deildin er í sókn á mörgum sviðum. Þjónusta við sjúklinga hefur verið bætt og aukin, mikil og góð samvinna er við aðra starfsemi spítalans og hafa svæfingar við flóknari inngrip aukist mikið. Það hefur verið forsenda fyrir því að nýjar tegundir inngripa eru í boði og eru frekari nýjungar og framþróun á stefnuskránni. Það er ljóst að áhugasamir hjúkrunarfræðingar munu gegna lykilhlutverki í þessari þróun sem mun halda áfram þegar speglunardeild flytur í nýjan meðferðarkjarna.
Starfsánægja á deildinni er mjög góð og hér skipta góð samskipti og gagnkvæm virðing miklu máli, sem og skýr meðferðarmarkmið og áþreifanlegur árangur. Á deildinni starfar öflugur hópur hjúkrunarfræðinga sem getur miðlað mikilli þekkingu og reynslu. Áhersla er lögð á að taka vel á móti nýju samstarfsfólki og að veita góða og markvissa aðlögun.