Bláa Lónið
Bláa Lónið er fjölbreyttur, spennandi en umfram allt skemmtilegur vinnustaður. Hjá okkur starfar fólk á öllum aldri, af ólíkum uppruna og í ólíkum störfum. Draumastarfið þitt gæti verið handan við hornið.
Undirstaðan í öllu því sem við gerum er að skapa góðar minningar fyrir gesti okkar. Það gerum við með því að hafa gleði og umhyggju að leiðarljósi, ásamt því að bera virðingu fyrir gestum okkar og hvert öðru.
Ánægja starfsmanna og ánægja gesta er samofin. Við leggjum okkur fram við að skapa góðan starfsanda og viðhorfskannanir staðfesta mikla starfsánægju. Við viljum að þér líði vel í vinnunni. Hjá okkur starfa fremstu matreiðslumenn landsins og starfsmenn fá að að njóta þess í fyrsta flokks mötuneyti. Það verður enginn svangur í vinnunni hjá Bláa Lóninu.
Við vinnum með fólki og fyrirtækjum af ólíkum toga. Starfsmenn njóta þessara tengsla. Sem dæmi má nefna kort í líkamsrækt, afslættir af ýmis konar vörum, þjónustu og afþreyingu.
Við ræktum félagslífið með skipulögðum hittingum utan vinnutíma. Við skemmtum okkur, ýmist öll saman eða innan einstakra sviða og deilda. Við erum stærri en þú kannski heldur. Hjá okkur starfa tæplega 700 manns með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu. Við erum ólík, en lærum af hvort öðru. Saman myndum við öfluga heild.
Sérfræðingur í Business Central og LS Retail
Bláa Lónið leitar að öflugum sérfræðingi til að ganga til liðs við metnaðarfullt teymi Upplýsingatækni & Stafrænnar Þróunar. Um er að ræða spennandi starf þar sem áhersla er lögð á Business Central og LS Retail til framtíðar.
Helstu verkefni:
-
Ráðgjöf og þjónusta við lykilnotendur.
-
Vinna á móti verktökum og þróunarteymi Bláa Lónsins.
-
Fræðsla og þjálfun fyrir helstu notendur og gerð kennsluefnis.
-
Hönnun og skjölun á sérlausnum.
-
Framkvæmd viðeigandi greininga.
-
Þátttaka í uppfærslum og verkefnum í LS Retail og Business Central.
-
Gæðastýring þróunar- og innleiðingarverkefna í samstarfi við prófunarstjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur:
-
Háskólamenntun eða starfsreynsla sem nýtist í starfi.
-
Marktæk reynsla og þekking á hugbúnaðarþróun.
-
Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæð vinnubrögð.
-
Lipurð í mannlegum samskiptum.
-
Þekking á Business Central, LS Retail eða sambærilegum kerfum er æskileg.
-
Góð enskukunnátta.
Viðkomandi mun hafa starfsstöð í skrifstofuhúsnæði Bláa Lónsins í Urriðaholti í Garðabæ.
Umsóknarfrestur er til og með 7.október.
Bláa Lónið er lifandi, skemmtilegur og fjölbreyttur vinnustaður þar sem áhersla er lögð á sífellda þróun og nýsköpun. Með framúrskarandi samvinnu allra starfsmanna er markmiðið að skapa einstaka upplifun fyrir gesti.
Nánari upplýsingar um starfið veita mannauðssérfræðingar Bláa Lónsins í síma 420-8800.
________________________________________________
Blue Lagoon is seeking a talented and motivated specialist focusing on Business Central and LS Retail. We are looking for someone with a passion for technology and problem-solving to join our dynamic and ambitious IT team.
Responsibilities:
-
Be the point of contact for internal Business and IT stakeholders focusing on operational issues.
-
Acquire expertise in the latest features and functionalities relevant to internal solutions.
-
Communicate and collaborate with internal customers to analyze issues and requirements.
-
Train others and create training materials as needed
-
Participate in the support and resolution of production issues as needed
-
Test new releases and system changes
Qualification requirements:
-
Relevant university education and work experience.
-
Substantial experience and knowledge in software development.
-
Initiative, reliability, adaptability, and organizational skills.
-
The ability to work independently and in a team environment.
-
Knowledge of Business Central, LS Retail, or similar systems is desirable.
We accept applications until October 7th.
Home to a wonder of the world, Blue Lagoon Iceland cultivates a cooperative, diverse, fun, and family-friendly workplace that emphasizes unforgettable guest experiences.
For further information about the job, contact the human resources specialists at the Blue Lagoon at 420-8800.
Auglýsing birt20. september 2024
Umsóknarfrestur7. október 2024
Tungumálahæfni
EnskaMeðalhæfni
ÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Urriðaholtsstræti 2-4, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Vef-forritarar á upplýsingatæknisviði
Arion banki
Forritari í tryggingalausnum á upplýsingatæknisviði
Arion banki
Sérfræðingur í reikningshaldi
Gildi
Sérfræðingar á skrifstofu fjármála og rekstrar
Dómsmálaráðuneytið
Verkefnastjóri í upplýsingatækni
Landsnet hf.
Verkefnastjóri á hönnunar- og framkvæmdadeild
Landspítali
Viðskiptastjóri
Heimar
Sérfræðingur á skrifstofu SSF
Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja
Sérfræðistörf á Akureyri á þjónustu- og upplýsingasviði
Skatturinn
Aðalbókari Nespresso á Íslandi
Perroy ehf
Hugbúnaðarþróun
Festi
Hugbúnaðarsérfræðingur í þróunarteymi
Pósturinn