

Sumarafleysing - Hjúkrunarfræðingar og hjúkrunarfræðinemar í
Heilbrigðisstofnun Vesturlands óskar eftir hjúkrunarfræðingum og hjúkrunarnemum í 60-100% vinnu við afleysingar sumarið 2025.
Við leitum að bæði hjúkrunarfræðingum og hjúkrunarnemum í sumarafleysingar í heimahjúkrun HVE. Frábært tækifæri til að öðlast reynslu og þróa faglega hæfni þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, umhyggju og virðingu fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra.
Boðið er upp á aðlögun með reyndu og frábæru starfsfólki. Við tökum vel á móti nýjum starfsmönnum.
-
Hjúkrunarfræðingar bera ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum
-
Heimahjúkrun felur í sér heilbrigðisþjónustu til fólk á öllum aldri sem býr heima hjá sér og þarfnast reglulegrar heilbrigðisþjónustu.
-
Heimahúkrun er einstaklingsmiðuð þjónusta sem er veitt í náinni samvinnu við notendur og aðstandendur.
-
Hjúkrunarfræðingar skulu hafa fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi
-
Hjúkrunarfræðinemar skulu hafa lokið a.m.k. þremur árum í hjúkrunarfræði en hvetjum einnig nemendur á 1. og 2. ári að sækja um
-
Starfsreynsla í hjúkrun er kostur
-
Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu















































