

Sumarafleysing á kvennadeild HVE Akranesi, hjúkrunarnemi
Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi óskareftir hjúkrunarnema í 60-100% vinnu við sumarafleysingu á kvennadeild HVE sumarið 2025. Þeir sem hafa lokið 1-3 árum í hjúkrunarfræði eru hvattir til að sækja um.
Frábært tækifæri til að öðlast reynslu og þróa faglega hæfni þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, umhyggju og virðingu fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra.
-
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum sem sjúkraliðar sjá alla jafna um í umönnum skjólstæðinga á deildinni samkvæmt lögum og reglugerðum.
-
Umönnun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila. Á deildinni fer fram umönnun kvenna á meðgöngu, við fæðingu, sængurlegu og eftir kvensjúkdóma aðgerðir, ásamt ummönnun nýbura.
-
Staðfesting frá námsbraut í hjúkrunarfræði um stöðu á hjúkrunarfræðinámi
-
Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
-
Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
-
Hæfni og geta til að vinna í teymi
-
Góð íslenskukunnátta
-
Staðfesting á bólusetningum















































