Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Efstaleiti

Heilsugæslan Efstleiti auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 80-100% tímabundið starf til eins árs. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. apríl nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Á Heilsugæslunni Efstaleiti starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og skemmtilegu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Lögð er áhersla á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.

Mikil þróunarvinna er í gangi á stöðinni og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Hjúkrunarfræðingar sinna krefjandi og áhugaverðum verkefnum, margvísleg tækifæri eru til að þróa með sér góða þekkingu og hæfni í starfi.

Ný og spennandi tækifæri eru til starfsþróunar innan HH, þar sem hjúkrunarfræðingum stendur til boða að þróa sig í starfi s.s starfsþróunarár og sérnám í heilsugæsluhjúkrun. Heilsugæslan Efstaleiti leggur áherslu á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning við nýja starfsmenn.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

Megin starfssvið er skólahjúkrun og opin og bókuð móttaka

  •  Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.    
     
  • Í móttöku sinna hjúkrunarfræðingar fólki á öllum aldri, bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf ásamt því að svara Heilsuveruskilaboðum. Í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum s.s. ferðamannaheilsuvernd, sárameðferð, lyfjagjöfum ásamt heilsueflandi móttöku.  
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Þekking og áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi
  • Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur
  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu
  • Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur
  • Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
  • Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
Auglýsing birt27. febrúar 2025
Umsóknarfrestur10. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Efstaleiti 3, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar