

Sumarafleysing - Sjúkraliðar á Hólmavík
Heilbrigðisstofnun Vesturlands óskar eftir sjúkraliðum og sjúkraliðanemum til afleysinga á Hjúkrunardeild HVE Hólmavík. Um er að ræða vaktavinnu. Starfshlutfall er 50-100% eða eftir nánara samkomulagi.
Boðið er upp á aðlögun með reyndu og frábæru starfsfólki. Við tökum vel á móti nýjum starfsmönnum.
Á HVE Hólmavík er gott að starfa og ríkir sérstaklega hlýr og góður starfsandi þar sem mikið er lagt upp úr góðri teymsivinnu allra starfshópa með fagmennsku, umhyggju og virðingu fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra að leiðarljósi.
Starfið felur í sér aðhlynningu og tilfallandi störf á deildinni
-
Súkraliðanám frá viðurkenndri menntastofnun.
-
Starfsleyfi landlæknis.
-
Reynsla af hjúkrun er kostur.
-
Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
-
Frumkvæði, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf.















































