

Sumarafleysing -Sjúkraliði og sjúkraliðanemar í heimhjúkrun
Heilbrigðisstofnun Vesturlands óskar eftir sjúkraliðum í 60-100% vinnu við sumarafleysingu í heimahjúkrun HVE sumarið 2025.
Frábært tækifæri til að öðlast reynslu og þróa faglega hæfni þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, umhyggju og virðingu fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra.
-
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum sjúkraliða í umönnum skjólstæðinga samkvæmt lögum og reglugerðum.
-
Heimahjúkrun felur í sér heimaþjónustu fyrir fólk á öllum aldri sem býr heima hjá sér og þarfnast reglulegrar heilbrigðisþjónustu.
-
Heimahjúkrun er einstaklingmiðuð og er veitt í náinni samvinnu við notendur og aðstandendur.
Gerð er krafa um
-
Íslenskt sjúkraliðaleyfi eða staðfesting á sjúkraliðanámi
-
Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
-
Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
-
Hæfni og geta til að vinna í teymi
-
Góð íslenskukunnátta
-
Einstaklingur þarf að hafa náð 18 ára aldri að lágmarki
-
Staðfesting á bólusetningum















































