

Sumarafleysing - Hjúkrunarfr. og hjúkrunarnemar Stykkishólmi
Heilbrigðisstofnun Vesturlands óskar eftir hjúkrunarfræðingi til afleysinga á hjúkrunar- og legudeild HVE Stykkishólmi. Um er að ræða vaktavinnu, unnið er á tvískiptum vöktum, bakvöktum og aðra -þriðju hverja helgi. Starfshlutfall er 50-100% eða eftir nánara samkomulagi.
Boðið er upp á aðlögun með reyndu og frábæru starfsfólki. Við tökum vel á móti nýjum starfsmönnum.
Einnig er í boði föst vinna fyrir hjúkrunarfræðinga
Á deildinni er veitt almenn lyflækninga- og öldrunarhjúkrun
Á deildinni er sérstaklega hlýr og góður starfsandi og mikið er lagt upp úr góðri samvinnu allra starfshópa þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra er höfð að leiðarljósi.
-
Hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun.
-
Starfsleyfi landlæknis.
-
Reynsla af hjúkrun er kostur.
-
Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
-
Frumkvæði, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf.















































