

Sviðsstjóri fagsviðs
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga leitar að öflugum og framsýnum hjúkrunarfræðingi sem brennur fyrir málefnum hjúkrunar, til að leiða starf fagsviðs félagsins. Tilgangur fagsviðs er að efla fagmennsku og styðja við þekkingarþróun í hjúkrun, með fræðslu og símenntun, ráðstefnuhaldi, erlendu samstarfi, ráðgjöf og rannsóknum á sviði hjúkrunar- og heilbrigðismála. Sviðsstjóri fagsviðs vinnur í nánu samstarfi við formann og annað starfsfólk.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga er fag- og stéttarfélag hjúkrunarfræðinga. Félagið þjónustar fjölmennustu heilbrigðisstétt á Íslandi með um 5.000 félagsmenn. Á skrifstofu félagsins starfa 9 manna öflugur hópur að fjölbreyttum verkefnum í þágu félagsmanna. Við bjóðum upp á áhugaverðan vinnustað og tækifæri til stöðugrar framþróunar.
- Þátttaka í stefnumótun félagsins varðandi hjúkrunar- og heilbrigðismál
- Gerð ályktana og umsagna
- Skipulagning faglegra ráðstefna, viðburða og námskeiða á vegum félagsins
- Vinna að eflingu símenntunar, sérþekkingar og nýsköpunar
- Þátttaka í starfi nefnda á vegum félagsins sem fjalla um fagleg málefni
- Þátttaka í erlendu samstarfi
- Hjúkrunarfræðimenntun áskilin, ásamt meistaraprófi
- Víðtæk reynsla og þekking af málefnum hjúkrunar skilyrði
- Leiðtoga-, samstarfs- og samskiptafærni
- Metnaður, frumkvæði og skipulagshæfni
- Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði
- Reynsla af textaskrifum og miðlun upplýsinga
- Færni í að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku













