

Skurðhjúkrunarfræðingar / hjúkrunarfræðingar á skurðstofur við Hringbraut
Við óskum eftir að ráða skurðhjúkrunarfræðinga á skurðstofur Landspítala við Hringbraut. Einnig kemur til greina að ráða nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga sem hafa áhuga á skurðhjúkrun. Í boði eru áhugaverð störf með góðu samstarfsfólki þar sem unnið er á þrískiptum vöktum auk bakvakta samkvæmt vaktskipulagi deildar eftir að þjálfun lýkur. Upphaf starfs og starfshlutfall er samkomulag.
Á skurðstofum Landspítala við Hringbraut eru 11 skurðstofur sem þjóna 7 sérgreinum og árlega eru framkvæmdar þar um 10 þúsund aðgerðir. Á deildinni starfa um 90 einstaklingar; hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sótthreinsitæknar, skrifstofufólk og sérhæft starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, sem unnin eru í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar, öryggi sjúklinga og teymisvinna eru höfð í fyrirrúmi á báðum starfseiningum. Í boði er einstaklings aðlöguð þjálfun eftir þörfum hvers og eins á skemmtilegum vinnustað.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.






























































