

Sumarafleysing - Sjúkraliði á Kvennadeild HVE Akranesi
Heilbrigðisstofnun Vesturlands óskar eftir
sjúkraliðum í 60-100% vinnu við sumarafleysingu á kvennadeild HVE sumarið 2025.
Frábært tækifæri til að öðlast reynslu og þróa faglega hæfni þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, umhyggju og virðingu fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra.
-
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum sjúkraliða í umönnum skjólstæðinga samkvæmt lögum og reglugerðum.
-
Umönnun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila. Á deildinni fer fram umönnun kvenna á meðgöngu, við fæðingu, sængurlegu og eftir kvensjúkdóma aðgerðir, ásamt ummönnun nýbura.
Gerð er krafa um
-
Íslenskt sjúkraliðaleyfi eða staðfesting á sjúkraliðanámi
-
Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
-
Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
-
Hæfni og geta til að vinna í teymi
-
Góð íslenskukunnátta
-
Einstaklingur þarf að hafa náð 18 ára aldri að lágmarki
-
Staðfesting á bólusetningum















































