

Hjúkrunarfræðingar á hjúkrunar- og legudeild HVE Stykkishólm
Heilbrigðisstofnun Vesturlands óskar eftir hjúkrunarfræðingum á hjúkrunar- og legudeild HVE Stykkishólmi. Um er að ræða vaktavinnu, unnið er á tvískiptum vöktum, bakvöktum á nóttu og aðra hverja helgi ásamt bakvöktum. Starfshlutfall er 50-100% eða eftir nánara samkomulagi.
Boðið er upp á aðlögun með reyndu og frábæru starfsfólki. Við tökum vel á móti nýjum starfsmönnum.
Á HVE Stykkishólmi er veitt almenn lyflækninga- og öldrunarhjúkrun.
Á HVE er gott að starfa og ríkir sérstaklega hlýr og góður starfsandi þar sem mikið er lagt upp úr góðri teymsivinnu allra starfshópa með fagmennsku, umhyggju og virðingu fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra að leiðarljósi.
Starfið felur í sér hjúkrun á sviði lyflækninga og öldrunar
-
Hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun.
-
Starfsleyfi landlæknis.
-
Reynsla af hjúkrun er kostur.
-
Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
-
Frumkvæði, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf.















































