Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Sumarstörf á HSU - Hjúkrunarfræðingar/nemar á bráðamóttöku

Við óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðinga / hjúkrunarfræðinema í sumarafleysingu á bráðamóttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi.

HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.

Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.

Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Um er að ræða hjúkrun á bráðamóttöku HSU þar sem öll bráðatilvik koma inn.
  • Sjúklingar tilheyra öllum aldurshópum og koma hvenær sem er sólarhringsins, sem gerir bráðamóttökuna að spennandi vinnustað með mikið af lærdómstækifærum.
  • Um er að ræða fjölbreytt starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki.
  • Mikið er lagt upp úr góðri samvinnu allra starfshópa þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra er höfð að leiðarljósi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun.
  • Starfsleyfi landlæknis.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf.
  • Til þess að komast á hjúkrunarvaktir á bráðamóttöku þarf að hafa lokið 3 árum í hjúkrunarfræði. 
Auglýsing birt7. mars 2025
Umsóknarfrestur28. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Árvegur 1, 800 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar