Aðstoðardeildarstjóri á líknardeild aldraðra L5 á Landakoti
Starf aðstoðardeildarstjóra á líknardeild aldraðra L5 á Landakoti er laust til umsóknar. Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með deildarstjóra og fylgir eftir ákvörðunum um skipulag hjúkrunar og verklag á deild sem og innleiðingu nýjunga í hjúkrun er stuðla að auknum gæðum hjúkrunar, gagnreyndum starfsháttum og öryggi sjúklinga.
Líknardeild aldraðra er staðsett á 5.hæð á Landakoti og á deildinni eru 9 einstaklingsherbergi. Markmið okkar er að sjúklingum okkar og fjölskyldu þeirra líði sem best hjá okkur. Deildin er hlýleg og heimilisleg með frábæru útsýni yfir borgina.
Á deildinni starfa um 25 manns. Við erum fagleg, jákvæð og tökum vel á móti nýju starfsfólki. Starfshlutfall er 100% og er starfið laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
Stjórnunarþekking og leiðtogahæfni
Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskiptahæfni
Skipulögð, vönduð og öguð vinnubrögð
Þekking á þjónustuþáttum Landspítala er kostur
Þekking á verkefnastjórnun og umbótastarfi er kostur
Góð íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinnur í samráði við hjúkrunardeildarstjóra að skipulagningu á starfsemi deildar
Ber ábyrgð á verkefnum sem hjúkrunardeildarstjóri felur honum samkvæmt sérstakri verkefnalýsingu
Er leiðandi í klínísku starfi, öryggis- og gæðastarfi og öðru umbótastarfi sem stuðlar að bættri þjónustu og framþróun í hjúkrun
Ber ábyrgð á starfsemi, mönnun og rekstri deildar í fjarveru og í samráði við hjúkrunardeildarstjóra
Er ábyrgur fyrir skipulagningu og framkvæmd hjúkrunar í fjarveru hjúkrunardeildarstjóra
Vinnur náið með deildarstjóra að mótun liðsheildar