Ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma
Við óskum eftir að ráða ráðgjafa/stuðningsfulltrúa á meðferðareiningu fíkni- og geðsjúkdóma. Starfshlutfall er 80-100%. Ráðið verður í starfið frá 15. ágúst 2024 eða eftir nánara samkomulagi.
Starfsaðlögun er markviss og einstaklingshæfð og á meðferðareiningunni eru töluverðir möguleikar til starfsþróunar.
Undir meðferðareininguna heyra legudeild, göngudeild, vettvangsgeðteymi (Laufeyjarteymi), dagdeild og afeitrunardeild ólögráða ungmenna. Um er að ræða spennandi og gefandi störf þar sem unnið er í þverfaglegum teymum þvert á meðferðareininguna.
Meðferðareiningin þjónustar fólk með tvíþættan vanda, geðrænan vanda annars vegar og vímuefnavanda hins vegar á mismunandi þjónustustigum. Meðferðarnálgunin er fjölþætt, heildræn og ræðst af þörfum og getu hvers skjólstæðings og aðstandenda hans.
Á meðferðareiningunni eru mikil tækifæri til vaxtar, mikil samvinna er á milli allra deilda einingarinnar.