Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Heimastuðningur Norðurmiðstöð

Ef þú ert félagslynd og lífsglöð manneskja sem hefur gaman af því að aðstoða fjölbreyttan hóp við að lifa innihaldsríku lífi lengur heima hjá sér, þá erum við að leita að þér!

Norðurmiðstöð óskar eftir starfsfólki til að sinna heimastuðningi á daginn. Um er að ræða dagvinnu í 100% starfshlutfalli.

Heimastuðningur veitir þjónustu eftir stuðningsáætlun sem gerð hefur verið við notendur á heimilum þeirra, aðstoð við almenn heimilisstörf, göngutúra, búðarferðir, félagslegan stuðning, persónulega umhirðu o.fl.

Við hvetjum öll kyn til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Heimastuðningur veitir þjónustu eftir stuðningsáætlun sem gerð hefur verið við notendur á heimilum þeirra, eins og aðstoð við heimilishald, þrif, félagslegan stuðning, persónulega umhirðu o.fl.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af heimaþjónustu eða umönnunarstörfum æskileg
  • Viðkomandi þarf að vera eldri en 18 ára
  • Bílpróf
  • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Vandvirkni og sjálfstæði í starfi
  • Íslenskukunnátta á bilinu B1-C1 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Sundkort hjá Reykjavkíkurborg
  • Menningarkort hjá Reykjavíkurborg
  • Stytting vinnuviku
  • Mötuneyti
  • Virt starfsmannafélag
Auglýsing stofnuð3. júlí 2024
Umsóknarfrestur24. júlí 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Efstaleiti 1, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)PathCreated with Sketch.Vandvirkni
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar