Hjúkrunardeildarstjóri Brjóstamiðstöðvar (brjóstaskimunar og göngudeildar Brjóstamiðstöðvar
Við leitum eftir kraftmiklum leiðtoga til að leiða og efla starfsemi Brjóstamiðstöðvar á Landspítala. Undir deildarstjóra heyra brjóstaskimun og göngudeild Brjóstamiðstöðvar. Starfið er unnið í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra, forstöðuhjúkrunarfræðing, aðra stjórnendur og samstarfsfólk.
Deildarstjóri þarf að búa yfir afburða hæfni í samskiptum og stuðla að teymisvinnu innan deildar og við aðra stjórnendur og samstarfsaðila. Deildarstjóri ber þríþætta ábyrgð þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og rekstrarábyrgð. Deildarstjóri er yfirmaður starfsfólks á deildinni, stjórnar daglegum rekstri og er leiðandi um fagleg málefni deildarinnar í samstarfi við yfirlækni Brjóstamiðstöðvar og yfirlækni brjóstaskurðlækninga.
Brjóstamiðstöð var stofnuð innan krabbameinsþjónustu Landspítala árið 2022. Hér er því um spennandi tækifæri að ræða þar sem viðkomandi mun koma að áframhaldandi uppbyggingu deildarinnar og þróun á þjónustu til framtíðar.
Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. mars 2025 eða eftir samkomulagi. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur krabbameinsþjónustu.
Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
Framhaldsmenntun í hjúkrun og/eða önnur viðbótarmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur
Farsæl reynsla af uppbyggingu og stýringu mannauðs er kostur
Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er kostur
Leiðtogahæfni, áhugi og vilji til að leiða breytingar og umbætur
Mjög góð hæfni í samskiptum og jákvætt viðmót
Hæfni til að leiða teymi
Sýn og hæfni til að leiða faglega þróun hjúkrunar og gæða- og öryggismál
Jákvætt lífsviðhorf, lausnamiðuð nálgun og framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Góð íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun starfseminnar, setur markmið um gæði og öryggi og tryggir eftirfylgni
Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna á deildinni
Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði
Vinnur að samþættingu á þjónustu brjóstaskimunar og göngudeildar Brjóstamiðstöðvar í samráði við yfirlækna og stýrihóp Brjóstamiðstöðvar
Myndar ásamt yfirlæknum og aðstoðardeildarstjórum stjórnendateymi miðstöðvarinnar og ber ábyrgð á innleiðingu stefnu
Stuðlar að samvinnu, samráði og uppbyggingu teymisvinnu innan Brjóstamiðstöðvar og við þær starfseiningar sem koma að þjónustu við sjúklinga Brjóstamiðstöðvar
Framfylgir stefnu og áherslum framkvæmdastjórnar Landspítala